Uppfærsla

By admin, November 1, 2009

Mánudaginn, 2. nóvember kl 14:00 – 16:00 munu Menntaskrif verða uppfærð úr útgáfu WordPress MU 2.7.1 í útgáfu 2.8.5.2. Notendur eru beðnir velvirðingar á óþægindum sem af því kunna að leiða.

Uppfærsla úr WordPress 2.6 í 2.7

By admin, May 11, 2009

WordPress kerfið okkar hér á Menntaskrifum verður uppfært í nýja útgáfu nú í vikunni 11. – 15. maí. Það mun hafa í för nokkrar breytingar á notendaumhverfi þótt meginvirkni kerfisins verði sú sama.

Sjá hér eMission skjásýningvar með leiðbeiningum um Wordpress 2.7

Fræðslutilboð Menntasmiðju 18. og 19. maí

By admin, May 11, 2009

Fræðslutilboð vegna starfsmannavefja 18. – 19. maí 2009

Minnt er á áður útsent efni frá vefstjóra, Lindu Erlendsdóttur, um breytingar sem unnið hefur verið að og varða vefmál á Menntavísindasviði. Eitt þessara viðfangsefna er að bjóða kennurum námskeið í flutningi starfsmananvefja á nýjan vefþjón sem er nauðsynlegt vegna sameiningar. Ennfremur gefst nú kostur á að sækja námskeið í notkun WordPress.

Námskeið vegna starfsmannavefja

Á námskeiðinu verður farið  yfir helstu breytingar á virkni þegar vefur er færður af starfsfolk.khi.is yfir á [www.hi.is/~]  Sýnt verður hvernig á að færa vefi yfir á nýja svæðið og fá starfsmenn leiðsögn við að færa sína.  Forrit sem verða notuð eru Microsoft Frontpage2003 og Microsoft Expression Web 2.

Kennari: Ingvar Ágúst ingvarsson
Staður: Tölvustofa H-205
Tími: Mánudagur 19. maí frá kl 10:00 til 12:00 og námskeiðið endurtekið frá kl 13:00 – 15:00

Skráning

Námskeið í WordPress
WordPress er einfalt vefumsýslukerfi og líklega eitt hið vinsælasta í netheimum um þessar mundir.  Menntasmiðja hefur veitt þjónustu við slíkt kerfi  frá áramótum og kallast það Menntaskrif, http://skrif.hi.is og  eru þau ætluð til efnisgerðar og miðlunar í þágu náms, kennslu og rannsókna.

Meginmarkmið námskeiðsins eru að auðvelda starfsfólki að :

  • halda úti eigin vefsvæði með upplýsingum um starf sitt, menntun og feril,
  • setja upp einfalda vefi vegna kennslu, samstarfs og/eða rannsóknarverekfna,

Kennari: Þorvaldur Pálmason
Staður: Tölvustofa H-205
Tími: Þriðjudagur 19. maí frá kl 10:00 til 12:00 og námskeiðið endurtekið frá kl 13:00 – 15:00

Skráning

Vandamál með myndir

By admin, February 25, 2009

Ýmsir hafa bent á vandamál  varðandi innsetningu mynda sem lýsir sér í því að ekki er hægt að hægri- eða vinstrijafna. Þetta hefur þó að einhverju leyti ráðist af því hvaða útlit er valið. Reynt hefur verið að ráða á þessu bót með því að setja inn viðbótarkóða í stílskrá allra sniða í samræmi við ábendingar frá Salvöru Gissurardóttur, lektors í upplýsingatækni. Ef vandamálið er þó enn til staðar eru viðkomandi vinsamlegast beðnir að senda ábendingu á, thpalma@hi.is og  geta m.a. um hvaða snið þeir nota.

Rétt er að vekja athygli á, að almennasta og besta leiðin til að staðsetja efni er að koma þvi fyrir í töflum. Með því að virkja íbótina TinyMCE Advanced (fara í Manage/Plugins) má draga inn ýmsa hnappa, m.a. til töflugerðar.

TinyMCE Advanced

By admin, January 9, 2009

TinyMCE Advanced er öflug viðbót við vefritilinn á Menntaskrifum. Vertu í stjórnendaham,smelltu á Manage og síðan á TinyMCE Advanced

Nú gefst kostur á að virkja hnappa með því að draga þá inn á efra svæðið eða gera hnappa óvirka með þvi að draga þá niður af efra svæðinu. Þú gætir þurft að endurhlaða síðuna til að breytingar taki gildi.