Foreldrasamtök og kennaramenntunarstofnanir í Danmörku, Svíþjóð, Noregi, Finnlandi og á Íslandi hafa tekið höndum saman um Norrænt þróunarverkefni um samstarf skóla og foreldra. Verkefnið hefur hlotið styrk frá Nordplus til tveggja ára, 2009-2011.
Norræna þróunarverkefnið byggir á þeirri forsendu að aukið samstarf heimila og skóla, foreldra og kennara, styrki skólastarf og efli nám grunnskólanemenda. Markmið verkefnisins er að draga saman góð dæmi úr skólastarfi og ýmislegt norrænt efni um þróunarstarf og rannsóknir á þessu sviði. Verið er að deila reynslu og gögnum og fyrirhugað að útbúa námskeið fyrir kennaranema og starfandi grunnskólakennara.




Skrifa ummæli»