header image

XAMPP/Joomla vandamál

Posted by: sjd1 | March 30, 2009 | 2 Comments |

Eins og skrifað í síðasta pósti, þá á ég í vandræðum með að komast í kerfisstjórnina á joomla. Þegar ég kláraði uppsetningu og fór á síðuna, leit hún svona út:

Ég veit ekki alveg hvað ég á að googla, þannig að það hefur ekki borið árangur og hef einnig verið að reyna að leita að einhverju á XAMPP:

Þaðan kemst maður áfram á phpadmin og getur valið joomla link, með fullt af jos_ skipunum, ég hef gert einhverjar tilraunir, í þeirri von að þetta muni breyta joomla síðuni, en án árangurs…

under: Uncategorized

XAMPP og Joomla

Posted by: sjd1 | March 29, 2009 | No Comment |

Tókst í dag með góðum leiðbeiningum frá 3f.is að setja upp XAMPP og Joomla. Þetta gekk ágætlega, en tók samt nokkrar klst með lestri og ýmislegum minni mistökum sem fylgdu.
Stóra vandamálið kom fyrst þegar ég var búinn að setja allt upp og fá installation completed… þá gat ég valið á milli að fara á síðuna eða í kerfisstjórn. Ég kaus það fyrsta og lenti á síðu, þar sem stendur Main menu og home… versta er að ég hef ekki hugmynd um hvernig ég kemst inn í kerfisstjórnina, þrátt fyrir margar tilraunir!

under: Uncategorized

Skil 23. mars

Posted by: sjd1 | March 23, 2009 | No Comment |

Ég hef verið að setja kennsluáætlunina inn á MindManager til að átta mig betur á henni og til þess að kynnast MM betur, verð að segja að mér líst mjög vel á það.
Greinirnar í Wikipedia er langt komin og Wikilexía er næstum því tilbúin. Það gengur ekki jafnvel með efnisvefinn, enda stórt verkefni, sem ég hef valið mér. Ég er byrjaður á skjákennsluni og hún verður væntanlega tilbúin fljótlega.
Ég er ekki búinn að velja grein til að skrifa um og ætla að ræða lokaverkefni við Salvör, áður en ég ákveði það.

under: Skilaverkefni

Tilraun að setja inn myndskeið

Posted by: sjd1 | March 21, 2009 | No Comment |

Það var einhver, sem nefndi við mig um daginn, að þetta Twitterdæmi kannski var einum of mikið og eftir að hafa séð þetta myndskeið, þá er ég alveg sammála. Hvar gengur línan á milli það, sem er nauðsynlegt að aðrir vita og það, sem er óþarfi?

under: Tilraun

Aftur á byrjunarreit

Posted by: sjd1 | March 9, 2009 | No Comment |

Eftir að vera búinn að lesa umræðurnar á Blakki bjóst ég við því versta, þegar kom að því að setja myndir inn og það fór þannig… ég náði ekki neinum myndum inn, þrátt fyrir fleiri tilraunir. Ég held mig reyndar vita af hverju, þannig að nú er það bara aftur á byrjunarreit.
Ég er búinn að ákveða að gera skjákennsluna um Outlook, til þess að kynna möguleikar þess fyrir samstarfsmönnum.
Ég er ekki búinn að ákveða vefleiðangur eins og er. Reyndar er ég ekki alveg sáttur við þessi verkefni eða reyndar það að það ekki eru aðrir kostir í boði fyrir þá, sem ekki eru að kenna í grunnskólum eða á hærra stigi.
Annars er ég á fullu á eTwinning, sem Fjóla kynnti okkur fyrir í sínum fyrirlestri og er að kíkja á möguleikan að stofna 2 verkefni með fólki frá Rúmeniu og Svíþjóð.

under: Skilaverkefni

Skil 2. mars

Posted by: sjd1 | March 2, 2009 | 1 Comment |

Búinn með 2 myndir fyrir skilin á morgun. Ein Tuxpaint og ein, sem átti að vera unnin í paint.net og var byrjuð þar, en ég endaði með að klára hana í inkscape. Ég átti í erfiðleikum með að vinna með stærð myndana og eftir að ég var búinn að croppa mynd og færa hana yfir sem lag á aðra mynd, gat ég ekki fært hana. Á þessu sviði er Inkscape snilld. Auðvelt að færa og finna rétta stærð á myndum þar, þannig að ég kláraði myndina þar, þá er bara spurning um hvað ég á skila hana sem…
Ég var reyndar búinn að klára eina mynd í Inkscape, en gerði eitthvað vitlaust, þegar ég var að vista myndina. Mikilvæg reynsla og allt sem ég hef gert síðan, hefur verið vista í fleiri ýmsum formötum.

Það kom upp umræða um námið, skipulagningu, kröfur og margt fleira í síðasta smiðjutíma hjá Carlosi. Hann benti okkur á að hugsa sem kennarir og hugsa um kjarna, sem við getum notað í kennsluni. Ég er reyndar að vinna í leikskóla, þannig að það er aðeins öðruvísi. Ég hef fjallað um efni tengt heilsuleikskóla í mediawiki og efnisviðinum. Ég er að spá í hvort stuttmyndin gæti tengst kennslu á tölvu fyrir starfsfólkið á leikskólanum, en er bara með nokkrar hugmyndir þar.
Varðandi vefleiðangur á ég ennþá eftir að fara yfir efnið, sem við eigum að lesa.

under: Skilaverkefni

Myndvinnsla

Posted by: sjd1 | February 25, 2009 | No Comment |

Það kom að þessu aðeins fljótari en ég bjóst við. Hélt að það átti fyrst að klára mediawiki, wikilexía og efnisvið fyrst, en svo kom í ljós að það átti að skila myndvinnsluna 2. mars. Ég vissi ekki af þessu fyrr en á netfundi á dimdim síðasta laugardag.
Þetta gætið alveg gengið betur, ég er að eyða allt of miklum tíma í ýmisk smáatriði, sem hefðu örugglega verið fljót að redda ef einhver með kunnáttu í þessu gæti aðstoðað mig. Á staðlotuni fengum við kennslu í 3 – 4 forritum og það var farið mjög hratt yfir, þess vegna hefur hún því miður skilað sér lítið.
Vandamálið verður ekki að skila verkefnin, en ég væri frekar til í að skila einni mynd sem ég væri meira ánægður með, en þrjár sem ég bara er að gera til þess að skila því sem ég á…

under: Skilaverkefni
Tags:

Allt komið á hreint

Posted by: sjd1 | February 15, 2009 | No Comment |

Þá er komið á hreint, hvað ég að ætla að fjalla um í verkefnunum tengd wikipedia, wikilexiu og efnisvið. Wikipedia verður um heilsuleikskóla, wikilexia um Færeyjar og efnisviðurinn um Samtök Heilsuleikskóla. Verð að viðurkenna að ég hlakka mest til efnisviðinn, sem ég ætla að setja upp í google sites.

under: Skilaverkefni

Næstu skil…

Posted by: sjd1 | February 4, 2009 | No Comment |

Hef verið að pæla mikið í verkefnunum, sem skila á 9. febrúar. Mér finnst þetta frekar opið, sem getur verið bæði gott og slæmt. Er nokkuð öruggur um hvað ég ætla að skrifa um á wikipedia, en er engu nær í hinum tveimur verkefnunum.

under: Skilaverkefni

Fyrsta bloggi

Posted by: sjd1 | January 22, 2009 | No Comment |

Þá er komið að fyrsta blogginu. Held ég hef verið að útsetja það aðeins of lengi, en hef hinsegin verið duglegur að skrá mig á þær vefsíður, sem við vorum beðin um að gera. Er ennþá að kynnast þeim og hlakka mikið til að vinna meira markvisst í þeim!

under: Uncategorized

Older Posts »

Categories